Jæja það er orðið solldið langt síðan að ég bloggaði síðast

Ég
er stödd núna á Akureyri heima hjá ömmu og afa og var að koma úr
skírn. Öddi bróðir pabba Jóa var að skíra og fékk litlan nafnið
Stefanía Ýr

Ég hélt á henni undir skírn og las uppúr bók
prestsins einhverjar línur...! En það munaði nú litlu að ég kæmist
ekki hingað í morgun.. Þannig er mál með vexti að Eva Jóa svaf yfir
sig

Flugvélin átti að fara frá Rvk kl 8:30 og kl. 9:30 vaknaði
ég!! Ég stökk framúr rúminu og beint í símann og hringdi niður á
Flugleiðir sem að sögðu mér að vélin væri ekki farin, það væri
ófært vegna þoku! JÁ!! Sjitt hvað ég var ánægð með það maður


Ég hendi mér í fötin, er alveg í spreng en pissa ekki, bursta ekki
í mér tennurnar heldur fæ mér Extra tyggjó!! Ég stekk uppí bíl Ingu
frænku og bruna af stað... EEEEEN ég er alveg að koma á staðinn og
þá fatta ég að ég er ekki með Steingrím Ottó!!!!!

Ojj hvað ég
varð sár... ætlaði að snúa við en hætti við! Jú jú ég mætti á
staðinn og skráði mig inn.. flugvélin fór kl 10..! Ég hitti
Heiðrúnu frænku á flugvellinum og við sátum saman á leiðinni norður
Annars er ég núna heima hjá ömmu og afa og er búin að vera að horfa
á nýjasta oth sem að Ragga reddaði mér

Netið er svo frábært
fyrirbæri

Planið er að gista hjá Íttu frænku í kveld og afa og
ömmu á morgun

Í kveld ætla ég að passa aðeins fyrir Íttu og fara
svo kannski eitthvað út.. aldrei að vita nema maður kíki á Huldu
sætu :* og Gíslann hennar

Svo er það sveitt djamm á morgun og
fyrsta djammið okkar Huldu saman

Eða svona... ég hef djammað með
henni en hún hefur verið edrú í öll þau skipti

Svo ætla ég að
kíkja á ömmu Sollu og Gauju og strákana á morgun og læra!! Ojj
maður.. ég tók sögubækurnar mínar með og ætla að lesa á morgun og á
mánudaginn! Veit ekki hversu þunn ég verð á mánudeginum en vonandi
ekki það mikið að ég geti ekki lesið á leiðinni í bæinn

hehe
Annars þá vil ég kenna Helgu og Ágústu um þetta því þær voru bara
of skemmtilegar til að beila á snemma... var sem sagt á rúntinum
með þeim til 2 eða eitthvað
En ég ætla að segja þetta gott í bili

Kem með ferðasögu eftir
helgi... ef ég nenni
kv, Eva stolta frænka